Heilsan skiptir öllu!
Fólkið á bakvið GÓ Heilsu eru hjónin Guðrún Ósk Maríasdóttir og Árni Björn Kristjánsson.
Helsti drifkrafturinn bakvið GÓ Heilsu er löngun okkar til þess að hjálpa einstaklingum í vegferð sinni að bættum lífsstíl og næringu. Við teljum að það sé ekkert eitt sem hentar öllum og því vinnum við heildrænt með hverjum og einum.
Námskeiðin
-
6 vikna plöntumiðað næringarnámskeið
- Verð
- frá 15.900 kr
- Útsöluverð
- frá 15.900 kr
- Verð
-
- Verð
- per
Uppselt -
6 vikna hefðbundið næringarnámskeið
- Verð
- frá 15.900 kr
- Útsöluverð
- frá 15.900 kr
- Verð
-
- Verð
- per
Uppselt
Umsagnir
Hvað færð þú hjá GÓ Heilsu?
Þegar barn fæðist í heiminn þá vonumst við öll eftir heilbrigðu barni og er það oft það eina sem foreldrarnir biðja um. Við hugsum eins vel um barnið og við mögulega getum. Gefum því bestu fæðuna og höfum umhverfið nærandi og uppbyggilegt. Eftir því sem við eldumst breytast oft áherslur okkar í lífinu. Hvað gerist svo oft yfir lífsleiðina? Jú, við hættum að huga eins vel að fæðunni og umhverfinu okkar.
En afhverju hættum við að hugsa um þessi atriði og það að vera heilbrigð - okkar eigið heilbrigði?
Heilsan ÞÍN og heilbrigði ER forgangsatriði!
Við viljum aðstoða þig við að hafa það þannig og bjóða þér að taka af skarið og láta ekki heilsuna sitja lengur á hakanum!
Við hjá GÓ Heilsu erum hér til þess að hjálpa þér að ná fram markmiðum þínum sem tengjast næringu, hreyfingu og lífstíl og koma þannig jafnvægi á líkama og sál.
Mataræðið er margslungið og hefur áhrif á ótal þætti í lífinu; hreyfingu, andlega heilsu, félagstengsl og margt fleira. Það sem má hins vegar ekki gleyma er að lífið hefur sömuleiðis mikil áhrif á það hvernig mataræðið okkar er, þarna þarf að koma á jafnvægi.
Við bjóðum upp á næringarnámskeið sem fara alfarið fram á netinu. Grunn næringarnámskeið er vinsælasta leiðin til að byrja nýja vegferð með mataræði og lífstíl.
Við erum sérhæfð í plöntumiðuðu mataræði og hefur það námskeið slegið í gegn hjá fjölbreyttum hópi fólks; nýjum grænkerum, þeim sem hafa áhuga á að auka neyslu grænkera afurða og hjá þeim sem hafa lengi verið grænkerar en vilja skerpa á næringarinntökunni. Hér er lögð áhersla á afurðir úr plönturíkinu og við komum inn á það hvað þarf að huga sérstaklega að á plöntumiðuðu mataræði.
Við erum einnig með námskeið sem byggist á því mataræði sem Embætti Landlæknis mælir með fyrir Íslendinga með nokkrum
GÓ Heilsu áherslubreytingum!
Nýlega bættist við námskeið sem við köllum Carb Cycling, þar einbeitum við okkur að kolvetnum og hvernig best sé að haga innöku þeirra til þess að hámarka nýtni þeirra. Þessi aðferð virðist hafa jákvæð áhrif á insúlín næmni líkamans og oft fylgir þyngdartap með þessu meðvitaða mataræði.
Fjögurra vikna framhaldsnámskeið er í boði fyrir þau sem hafa lokið grunn næringarnámskeiðunum (plöntumiðaða og hefðbundna). Þar er farið ítarlega í vítamín og steinefni, áhrif svefns, tímasetningar máltíða, keppnismáltíðir, núvitund og hugarró (e. mindfullness) í mataræði og fleira.
Fleiri námskeið eru í vinnslu, svo fylgstu vel með!
Við viljum vera til staðar fyrir þig í þinni vegferð sem er einstök!
Hafðu endilega samband á goheilsa@goheilsa.is ef þú vilt vita meira um námskeiðin eða fá einstaklingsmiðaða þjónustu.
Uppskriftir
Fyrirtækjaþjónusta
GÓ Heilsa bíður einnig upp á fyrirtækjaþjónustu.
Viltu fá næringarfyrirlestur inn í fyrirtækið þitt? Við höfum mikla reynslu af því að halda fyrirlestra um næringu og þá sérstaklega hvernig gott sé að auka grænan kost og huga að umhverfisvænna mataræði.
Við bjóðum einnig upp á aðstoð við matvælafyrirtæki að reikna út næringargildi og setja upp innihaldslýsingar. Við getum einnig sett upp gæðahandbók fyrir matvælafyrirtækið þitt og framkvæmt innri úttektir. Rík þekking á ISO og BRC gæðastöðlum.
Hafðu samband á goheilsa@goheilsa.is til að fá nánari upplýsingar.