Skilmálar
GÓ Heilsa
Kennitala 120389-2119
Kirkjubrekka 10, 225 Álftanes
Sími: +354 662 3354
Netfang: goheilsa@goheilsa.is
ALMENN ÁKVÆÐI
Skilmálar þessir gilda um kaup á vöru eða þjónustu á vefsvæðinu goheilsa.is. Skilmálarnir skilgreina réttindi og skyldur GÓ Heilsu annars vegar og kaupanda vöru eða þjónustu hins vegar. Hafi skilmálar þessir ekki verið samþykktir af kaupanda við nýskráningu á vefsíðu GÓ Heilsu, goheilsa.is, teljast þeir samþykktir við fyrstu kaup á vöru eða þjónustu.
GÓ Heilsa áskilur sér rétt til að hætta við pantanir. Einnig er áskilinn réttur til að breyta verðum eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust.
„Kaupandi“ er einstaklingur, sem er aðili samnings en stundar ekki viðskipti eða aðra athafnastarfsemi, þ.e. einstaklingur sem kaupir vöru eða þjónustu í skilningi laga um neytendakaup nr. 48/2003. Kaupandi verður að vera a.m.k. 16 ára. „Kaupandi“ getur líka verið lögaðili, en lög um um þjónustukaup nr. 42/2000 eiga við fyrirtæki og stofnanir. Þessi lög gilda um réttarstöðu samningsaðila þegar sérstökum ákvæðum þessara skilmála sleppir. GÓ Heilsa selur vörur eða þjónustu til kaupanda á vefsvæði sínu.
VERÐ
Vinsamlegast athugið að verð á vefsvæði GÓ Heilsu og í útsendum póstum getur breyst án fyrirvara. Verð er birt með virðisaukaskatti og með fyrirvara um innsláttar- og kerfisvillur. GÓ Heilsa áskilur sér rétt til að afturkalla pantanir í heild eða að hluta ef að viðkomandi vara er uppseld, námskeið fellur niður eða verður ekki lengur í boði. GÓ Heilsa mun upplýsa kaupanda um allt slíkt eins fljótt og kostur er, og hugsanlega koma með tillögu að annarri vöru sem kaupanda gefst kostur á að samþykkja eða hafna.
PERSÓNUUPPLÝSINGAR
Á goheilsa.is er aðgengileg persónuverndarstefna félagsins. Í þessari persónuverndaryfirlýsingu kemur fram hvernig GÓ Heilsa umgengst þær persónuupplýsingar um kaupanda sem geymdar eru og hvaða réttindi hann á varðandi upplýsingarnar.
AÐGANGUR
Kaupandi hefur leyfi til að nota vefinn goheilsa.is og appið MyCoach by CoachCatalyst og þá þjónustu sem þar er boðið upp á í samræmi við skilmála þessa og þær aðgangstakmarkanir sem GÓ Heilsa setur. Hafi skilmálar þessir ekki verið samþykktir af kaupanda við nýskráningu á vefsíðu GÓ Heilsu, teljast þeir samþykktir við fyrstu kaup.
Stranglega er bannað að falsa nafn og persónuupplýsingar við skráningu inn á goheilsa.is. Verði kaupandi uppvís að að slíku og öðru sviksamlegu athæfi við kaup á vefnum áskilur GÓ Heilsa sér rétt til að vinna náið með lögreglu við úrlausn slíkra mála, þ.m.t. að veita henni þær upplýsingar sem nauðsynlegar eru í slíkum tilvikum. GÓ Heilsa áskilur sér rétt til að takmarka eða loka fyrir aðgang að goheilsa.is og öðrum upplýsingaveitum ef grunur leikur á að kaupandi hafi orðið uppvís að falsa nafn og persónuupplýsingar við skráningu.
INNSKRÁNING OG PÖNTUN
Við fyrstu innskráningu skráir kaupandi fullt nafn, kennitölu, heimilisfang og tölvupóstfang sitt. Pöntun kaupanda á vefversluninni er bindandi þegar hann hefur staðfest pöntun sína í kaupferlinu. GÓ Heilsa er skuldbundið að afgreiða pöntun kaupanda (nema í tilvikum sem nefnd eru í 2. og 3. grein þessara skilmála) og sendir kaupanda staðfestingu með tölvupósti. Jafnframt sendir GÓ Heilsa kaupanda afrit af reikningi þegar greiðsla berst frá kaupanda. Kaupanda er bent á að kynna sér vel staðfestingu á pöntun þegar hún berst.
AFHENDING
GÓ Heilsa býður eingöngu upp á skráningu á námskeið á vefnum eins og stendur. Skráðir einstaklingar fá staðfestingu um skráningu með helstu upplýsingum um námskeiðið eigi síðar en 24 tímum fyrir fyrsta tíma námskeiðs.
YFIRFERÐ Á VÖRU
Eftir að kaupandi hefur móttekið pöntunina þarf hann að byrja á því að kanna hvort hún sé í samræmi við pöntunarstaðfestingu og reikning. Skilmálar þessir gera ráð fyrir að kaupandi hafi lesið og kynnt sér leiðbeiningar sem fylgja með vörunni. Ef kaupandi telur að varan sé ekki í samræmi við vörulýsingu eða þörf er á ítarlegri leiðbeiningum með vörunni, skal senda tilkynningu þess efnis með tölvupósti á netfangið goheilsa@goheilsa.is. GÓ Heilsa áskilur sér rétt að sannreyna staðhæfingu innan 14 daga.
SAMNINGURINN
Með greiðslu staðfestir kaupandi að hann þekki gildandi skilmála vefverslunarinnar goheilsa.is. Hver kaup eru bindandi fyrir kaupanda samkvæmt skilmálum og skilyrðum vefverslunarinnar.
GREIÐSLA
Greiðslu getur kaupandi innt af hendi á ýmsa vegu:
- Kredit- eða debetkort:Greiðsla fer fram á sama tíma og kaupandi skráir kaup sín. Greiðsla með kreditkorti fer fram í gegnum örugga greiðslugátt sem kaupanda er beint sjálfkrafa til þegar hann fyllir út greiðsluupplýsingar. Þegar kaupandi staðfestir upplýsingarnar er greiðslan skuldfærð af kortinu.
- Netgíró:Kaupandi samþykkir að nota þjónustu Netgíró. Einnig er hægt að nýta sér raðgreiðslur með Netgíró. Frekari upplýsingar um virkni þjónustunnar má finna á netgiro.is.
SKILARÉTTUR VEFVERSLUNAR
Kaupandi sem verslar á goheilsa.is hefur fram að 24 tímum áður en að námskeið hefst til að afskrá sig. Afskráning fer fram í gegnum netfangið goheilsa@goheilsa.is. Afskrái þátttakandi sig innan 24 tíma þar til námskeið hefst fær viðkomandi 50% endurgreiðslu. Afskrái þátttakandi sig eftir að námskeið hefst býðst engin endurgreiðsla. Ekki er hægt að færa skráningu á námskeið yfir á annað tímabil. Vinsamlegast hafið samband við GÓ Heilsu með spurningar á netfangið goheilsa@goheilsa.is eða í síma 662 3354.
ÁBYRGÐ
Allir þátttakendur GÓ Heilsu eru á eigin ábyrgð á námskeiðunum. Upplýsa skal næringarþjálfara og þjálfara um líkamlega kvilla eða sjúkdóma sem gætu haft áhrif á þjálfunina.
EIGNARRÉTTUR
Netnámskeið og öll fræðsla sem þar fer fram eru í einkaeigu GÓ Heilsu og er öllum óheimilt að þjálfa eða afrita efnið og rukka fyrir það án þess að vera í samstarfi við GÓ Heilsu.
ANNAÐ
GÓ Heilsa áskilur sér fullan rétt til að breyta ákvæðum þessara skilmála, enda verði kaupanda tilkynnt um það. Útsending nýrra skilmála til kaupanda og/eða birting á vefsíðunni goheilsa.is telst nægileg tilkynning. Litið er svo á að kaupandi hafi samþykkt breytinguna ef hann kaupir vöru eða þjónustu eftir að tilkynning um breytingu hefur verið gefin út.
ÁGREININGUR
Rísi ágreiningur milli aðila um efni þessara viðskiptaskilmála eða vegna brota á þeim má bera viðkomandi mál undir Kærunefnd þjónustu og lausafjárkaupa hjá Neytendastofu. Ef allt þrýtur er heimilt að reka mál vegna þessa fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur skv. ákvæðum laga nr. 91/1991.
TRÚNAÐUR
Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki afhentar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum.
GILDISTÍMI
Skilmálar þessir gilda frá 1. maí 2020.
LÖG OG VARNARÞING
Samningur þessi er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjavikur.
ENGLISH
GENERAL
GÓ Heilsa reserves the right to cancel orders, to change prices and to change product types being sold, without notice.
Please notice that the course will be taught in Icelandic unless other is stated.
PRODUCT DELIVERY
All participants will receive an e-mail from their coach within 24 hours before the first class of the course. The e-mail should include information about the course.
CANCELLATION RIGHT / RIGHT TO RETURN AND REFUND IN OUR WEBSTORE
The webstore buyer has untill 24 before the first class of the course to cancel his/her order. Refund is made for half of the price if buyer cancels the order within 24 hours before the first class of the course. If the buyer cancels his/her order after the first class, no refund will be available. Please contact goheisla@goheisla.is for questions.
PRICE
Please notice that the price on the internet can change without notice.
TAXES AND FEES
All prices on the website are including VAT and invoices are issued with VAT.
CONFIDENTIALITY
The seller holds all information from the buyer in relation to the purchase as confidential. Under no circumstances will information be handed to a third party.
GOVERNING LAW / JURISDICTION
These Terms and Conditions are in accordance with Icelandic law.